Lyfjaform:
Nefúði.
Ráðlagður dagskammtur er 5 mg, eða einn úði í aðra nösina, sem skal taka við fyrstu einkenni um verk. Nota má annan skammt ef einkenni koma aftur fram innan 24ra klst. en þó ekki innan 2ja klst. frá upphafsskammti. Heildarskammtur yfir daginn má ekki vera stærri en 10 mg og ekki skal taka lyfið oftar en 2svar á sólarhring.
Áhrif fást innan 1 klst.
Hámarks áhrif fást eftir 1 klst.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Lyfið er aðeins notað við mígreniverkjum, ekki að staðaldri.
Lyfið er aðeins notað á meðan mígreniverkur er að ganga yfir.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni.
Zolmítriptan er ekki notað að staðaldri heldur aðeins til þess að slá á mígreniköst.