Upplýsingar um lyfið
Zinnat

Cefúroxím er breiðvirkt sýklalyf. Það tilheyrir flokki sýklalyfja sem kallast cefalóspórín, en lyf í þessum flokki hafa sama verkunarmáta og pensilín. Cefúroxím hefur áhrif á margar sýklategundir, þar á meðal suma sýkla sem hafa myndað ónæmi fyrir pensilíni. Lyfið er notað við sýkingum í þvagfærum, öndunarfærum og eyrum. Cefúroxím er einnig notað við lekanda. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur cefúroxím raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans og því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu. Alvarlegustu aukaverkanir cefúroxíms, eins og annarra cefalóspórína, eru mikil ofnæmisviðbrögð. Einkenni eru þau sömu og koma fram vegna pensilínofnæmis, hiti, bólgin tunga eða háls og öndunarerfiðleikar. Þeir sem hafa pensilínofnæmi eru líklegri en aðrir til þess að fá ofnæmi fyrir cefalóspórínum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Mixtúra og töflur til inntöku.

Fullorðnir: 125-500 mg í senn 2svar á dag. Börn: 10-15 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag í 2 skömmtum. Takist inn eftir máltíð. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má ekki mylja þær. Mixtúran hristist fyrir notkun.

Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 2-3 klst.

Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá. Uppleyst mixtúra geymist í 2 vikur í kæli.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Cefúroxím er almennt ekki notað nema í skamman tíma.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er niðurgangur, sem kemur fram hjá 5-8% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Meltingartruflanir, niðurgangur
Útbrot, kláði
Gula
Sveppasýking í leggöngum, útferð
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sýklalyf
GlaxoSmithKline
Virkt innihaldsefni: Cefúroxím
Skráð: 1.10.1990
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: GX ES7
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd:
Lögun: Ílöng Breidd:
Kúpt Þvermál:
Deilistrik: Þykkt:
Styrkur: 250 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.