Voltaren Dolo

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Voltaren Dolo

Voltaren Dolo er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efnið díklófenak dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau stuðla m.a. að bólgumyndun. Lyfið er notað við ýmsum gigtsjúkdómum, verkjum og bólgum af ýmsum toga, m.a. eftir slys og aðgerðir, tíðaverkjum og bakverkjum. Notkun þess við gigtsjúkdómum kallar oft á langtímameðferð en bólgueyðandi og verkjastillandi meðferð með díklófenaki er oftast skammtímameðferð.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Fullorðnir og börn eldri en 14 ára: 25-75 mg á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi fyrir máltíð.

Innan við 1-2 klst.

Allt að 12 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Lyfið er notað við tilfallandi verkjum.

Hætta má töku lyfsins þegar ekki gerist lengur þörf fyrir það.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Lyfið er almennt ekki ætlað til langtímanotkunar. Við langtímanotkun er æskilegt er að fara reglulega í eftirlit til læknis til að meta áhrif lyfsins á lifur, nýru, blóðhag og maga.

Aukaverkanir

Óþægindi frá meltingarvegi eru algengustu aukaverkanir lyfsins. Þau hverfa oftast eftir inntöku lyfsins í nokkra daga.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Bjúgur, hár blóðþrýstingur
Hægðatregða
Höfuðverkur, svimi
Kviðverkir, uppþemba, vindgangur
Lystarleysi
Ógleði, uppköst, niðurgangur, meltingartruflanir
Suð fyrir eyrum
Útbrot, kláði
Gula
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf
Novartis Healthcare
Virkt innihaldsefni: Díklófenak
Skráð: 1.10.2004
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 11 mm
Lögun: Sporöskjulaga Breidd: 5,5 mm
Kúpt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 3,5 mm
Styrkur: 12,5 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með astma
- þú sért með blæðingartilhneigingu
- þú sért með háan blóðþrýsting
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
- þú sért með magabólgu
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má taka lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 14 ára.

Eldra fólk:

Aukin hætta er á aukaverkunum. Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni í ráðlögðum skammtastærðum í suttan tíma.

Áfengi:

Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni díklófenaks.

Getur haft áhrif á
Sjá allt (169)