Lyfjaform:
Sýruþolnar töflur til inntöku, útvortis hlaup, endaþarmsstílar og stungulyf í vöðva.
Töflur og stílar: Fullorðnir: 25-50 mg í senn 3svar á dag. Börn eldri en 2ja ára: 0,5-3 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag. Töflurnar gleypist heilar. Hlaup: Borið á aum eða bólgin svæði 3-4 sinnum á dag.
Stungulyf: 75 mg í senn.
Töflurnar ná hámarksþéttni í blóði eftir 2 klst. Stungulyfið fer að virka innan 20 mín.
Mismunandi eftir ástandi sjúklings og lyfjaformi.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að taka lyfið. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.
Æskilegt er að fara reglulega í eftirlit til læknis og láta meta áhrif lyfsins á lifur, nýru, blóðhag og maga. Stungulyfið á ekki að nota lengur en í 2 daga.