Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Skammtar eru háðir líkamsþyngd.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Getur dregið úr áhrifum pindólóls á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.