Upplýsingar um lyfið
Vancocin

Vankómýcín er sýklalyf sem hefur frekar þröngt verkunarsvið, en það er einungis virkt gegn sumum bakteríusýkingum og þá einna helst sýkingum af völdum gram jákvæðra baktería. Vankómýcín tilheyrir flokki sýklalyfja sem kallast glýkópeptíð. Lyf í honum drepa bakteríur með því að hafa áhrif á myndun frumuveggs bakteríanna. Vankómýcín frásogast nær ekkert frá meltingarvegi og er því bara notað til staðbundinnar meðferðar á sýkingum í meltingarvegi, eða þar sem hættuminni lyf koma ekki að gagni.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Hylki til inntöku.

Fullorðnir: 500 mg í senn 4-6 sinnum á dag í 7-10 daga. Börn: 50 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag í 4-6 skömmtum í 7-10 daga. Hylkin gleypist heil.

Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Taktu síðan það sem eftir er af dagskammtinum með reglulegu millibili það sem eftir er dags. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta því að sýkingin nái sér aftur á strik og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Vankómýcín er aðeins notað í skamman tíma í senn.

Aukaverkanir

Þar sem lyfið frásogast nánast ekkert frá meltingarvegi eru almennar aukaverkanir fátíðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hiti, hrollur, svimi
Vöðvakrampar og verkir í brjósti og hrygg
Heyrnatap, suð fyrir eyrum
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Þarmasýkingalyf
NordMedica
Virkt innihaldsefni: Vankómýcín
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Ferskjulita Blár
Áletrun: Lilly yfir 3125 Lilly yfir 3125
Mynd:
Gerð: Hylki Lengd: 17,5 mm
Lögun: Lok/botn (hylki) Breidd: 0 mm
Þvermál: 6,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 0 mm
Styrkur: 125 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með þarmakvilla
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:

Skammta þarf að minnka ef nýrnastarfsemi er skert.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.