Upplýsingar um lyfið
Tússól

Tússól er slímlosandi hóstamixtúra. Lyfið inniheldur tvö virk efni, gvaífenesín og ammóníumklóríð, auk lakkrísrótar. Gvaífenesín þynnir slím og auðveldar að því sé hóstað upp. Við þetta minnkar erting í öndunarfærum og þar með hósti. Ammóníumklóríð hefur einnig slímlosandi áhrif. Lakkrísrót er hóstastillandi og hún örvar líka slímseyti í barkanum sem aftur stuðlar að losun límkennds kvefslíms og auðveldara verður að hósta því upp. Saman stuðla þessi þrjú efni að auknum hóstastillandi og slímlosandi áhrifum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Mixtúra til inntöku.

Fullorðnir: 10 ml í senn 3svar á dag. Börn 1-12 ára: 2,5-5 ml í senn 3svar á dag. Börn á fyrsta ári: 1,25-2,5 ml í senn 3svar á dag. Hver ml inniheldur 5,5 mg gvaífenesín.

30-60 mín.

Um 8 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Lyfið er ekki tekið reglulega heldur eftir þörfum, mest 3svar á dag.

Hætta má töku lyfsins þegar einkenni eru ekki til staðar lengur.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef mjög stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.

Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Óþægindi frá meltingarvegi, ógleði

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Hósta- og kveflyf
Actavis
Virk innihaldsefni: Ammóníumklóríð, Gvaífenesín, Lakkrís
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum

Meðganga:

Ekki nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Minni skammtar eru notaðir.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Í venjulegum skömmtum hefur lyfið ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Mixtúran inniheldur 7,5% alkóhól og getur því aukið áhrif áfengis.

Íþróttir:

Inniheldur alkóhól. Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.

Milliverkanir

Milliverkanir við önnur lyf eru ekki skráðar.