Upplýsingar um lyfið
Trimezol

Trimezol inniheldur tvö virk efni, trímetóprím og súlfametoxazól. Bæði virku efnin hafa sýklahemjandi áhrif. Þau hindra vöxt baktería með því að stöðva ákveðin ferli í efnaskiptum sem eru nauðsynleg fyrir fjölgun þeirra. Virku efnin tvö auka áhrif hvors annars og það er því áhrifaríkara að gefa þau saman eins og hér er gert. Trimezol er notað við sýkingum af völdum baktería sem eru næmar fyrir lyfinu eins og í loftvegum, eyrum, meltingarvegi, þvagfærum og húð. Það er einnig notað við sýkingum í beinum. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur lyfið raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans og því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 2 töflur í senn 2svar á dag. Hver tafla inniheldur 80 mg trímetóprím og 400 mg súlfametoxazól. Takist með mat eða drykk.

Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Æskilegt er að fylgst sé reglulega með blóði þegar lyfið er notað í langan tíma.

Aukaverkanir

Allt að 10% þeirra sem taka lyfið finna fyrir einhverjum aukaverkunum þess. Algengustu aukaverkanir lyfsins eru óþægindi í meltingarvegi og einkenni í húð.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hiti
Ógleði, uppköst, niðurgangur
Tungubólga
Útbrot, kláði
Gula
Sveppasýking í leggöngum, útferð
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sýklalyf
Actavis
Virk innihaldsefni: Súlfametoxazól, Trímetóprím
Skráð: 1.12.2009
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 13 mm
Deilistrik: Þykkt: 3,5 mm
Styrkur: 400 + 80 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með astma
- þú sért með einhvern blóðsjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið getur haft áhrif á fóstur og/eða nýbura og á ekki að nota það á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Minni skammtar eru notaðir. Æskilegt er að nota annað lyfjaform fyrir börn yngri en 12 ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið sundli og syfju. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.