Lyfjaform:
Töflur og mixtúra til inntöku.
Við sýkingu, fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 150-200 mg í senn 2svar á dag eða 300 mg að kvöldi. Börn eldri en 3ja mánaða: 3 mg á hvert kg líkamsþyngdar í senn 2svar á dag. Fyrirbyggjandi, fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 100 mg að kvöldi. Börn eldri en 3ja mánaða: 1-2 mg á hvert kg líkamsþyngdar að kvöldi. Flaskan hristist fyrir notkun.
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni á 2 klst.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt að einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Við langvarandi meðferð þarf að fylgjast með fólínsýruþéttni og blóðhag.