Upplýsingar um lyfið
Trandate

Trandate tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar, en hefur einnig nokkra alfa-blokkandi verkun. Alfa-blokkandi verkun lyfsins veldur slökun á sléttum vöðvum í æðum, þar með æðavíkkun, og leiðir aftur til lækkunar á blóðþrýstingi. Beta-blokkandi verkun virka efnisins, labetalóls, hindrar áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri, s.s. hjarta og æðar. Lyfið minnkar samdráttarkraft hjartans og hjartsláttartíðni og dregur þar með úr blóðþrýstingi. Trandate er notað við háum blóðþrýstingi, einnig hjá konum á síðari tveimur þriðju hlutum meðgöngutíma. Lyfið er auk þess notað við hjartaöng samfara of háum blóðþrýstingi. Labetalól stuðlar að samdrætti lungnaberkja og þar með þrengingu loftvega. Lyfið er því ekki notað fyrir sjúklinga með öndunarfærasjúkdóma á borð við astma, berkjubólgu eða lungnaþembu. Eins og aðrir beta-blokkarar hefur labetalól áhrif á stjórnun blóðsykurs, og því þarf að gæta varúðar ef lyfið er gefið sykursjúkum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku og stungulyf í æð.

Töflur: 100-400 mg í senn 2svar á dag. Takist með mat.

Misjafnt eftir ástandi sjúklings og lyfjaformi. Hámarksblóðþéttni næst 1-2 klst. eftir inntöku taflnanna.

Misjafn eftir ástandi sjúklings og lyfjaformi.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Einkenni sjúkdóms geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef vart verður við öndunarerfiðleika eða skerta meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Flestar aukaverkanir lyfsins koma fram í upphafi meðferðar og ganga yfir við áframhaldandi notkun. Algengastar eru svimi, höfuðverkur og þreyta.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, svimi, þreyta
Nefstífla
Ógleði
Svimi þegar staðið er upp
Tilfinning um stingi í hársverði
Truflun á sáðláti
Þokusýn
Útbrot, kláði
Þvagtregða
Gula
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Beta-blokkar
Aspen Europe
Virkt innihaldsefni: Labetalól
Skráð: 1.2.1982
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Appelsínugulur Appelsínugulur
Áletrun: G S yfir SC5
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 8 mm
Deilistrik: Þykkt: 3 mm
Styrkur: 100 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með aðra hjarta- eða æðasjúkdóma
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum.

Eldra fólk:

Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Getur dregið úr áhrifum labetalóls á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.

Milliverkanir

Sé lyfið tekið með öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum geta áhrif þeirra magnast. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá allt (24) Sjá allt (108)