Tegretol retard

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Tegretol retard

Karbamazepín, virka efnið í Tegretol Retard, er fyrst og fremst notað við flogaveiki. Flogaveiki er tilkomin vegna heilaskaða eða hún gengur í erfðir. Margar undirtegundir flogaveiki hafa verið flokkaðar eftir einkennum sem flogunum fylgja og breytingum sem verða á heilastarfsemi á meðan flogin ganga yfir. Flogaveikiseinkenni stafa af óeðlilega mikilli virkni taugafrumna í heila og hárri tíðni taugaboða. Breytingarnar geta verið bundnar við lítinn hluta heilans (hlutaflog) eða náð yfir stóran hluta hans (alflog). Karbamazepín minnkar hæfileika taugafrumna að senda frá sér boð með mjög stuttu millibili. Með því hindrar lyfið breytingarnar sem verða á starfsemi heilans í flogaköstunum. Lyfið virkar á margar tegundir flogaveiki, staðbundin flog og krampaflog, en það hefur ekki áhrif á störuflog. Það er einnig notað til að fyrirbyggja oflætisköst þegar ekki er hægt að nota litíum (sjá Litarex og Litíumsítrat Actavis). Karbamazepín nýtist líka við taugaverkjum í andliti, langvarandi verkjum vegna taugaskemmda, t.d. hjá sykursjúkum, og við fráhvarfseinkennum drykkjusýki. Ein aukaverkun karbamazepíns er sú að það fjölgar hormóni sem dregur úr þvagmyndun í nýrum. Hægt er að nota lyfið við flóðmigu (diabetes insipidus), sjúkdómi sem orsakast af því að of lítið myndast af þessu hormóni eða að nýrun eru ekki nógu næm fyrir áhrifum þess.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Forðatöflur til inntöku.

Skammtar eru einstaklingsbundnir. Fullorðnir: 100-400 mg í senn 2-4 sinnum á dag. Börn: 10-20 mg á hvert kg líkamsþyngdar á sólarhring. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Mjög einstaklingsbundið.

Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Engin, en ef lyfið er tekið með mat nýtist það betur.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ef fleiri en einn skammtur gleymast í röð skaltu hafa samband við lækni. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar hætt er að taka lyfið, sérstaklega ef skammtar eru ekki minnkaðir smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.

Karbamazepín getur valdið blóðbreytingum og haft áhrif á lifrarstarfsemi. Fylgjast þarf reglulega með þéttni lyfsins í blóði, samsetningu blóðs og starfsemi lifrar.

Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru fátíðar ef skammtar eru litlir, en verða meira áberandi þegar skammtar eru stækkaðir. Húðútbrot og kláði koma fram hjá 4-6% þeirra sem taka lyfið. Fái sjúklingur flog, sem tekur lyfið reglulega við flogaveiki, skal strax hafa samband við lækni.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Bjúgur, þyngdaraukning
Erfiðleikar við að samhæfa hreyfingar
Munnþurrkur
Niðurgangur, hægðatregða
Ógleði, uppköst, lystarleysi
Sjóntruflanir
Svimi, þreyta, höfuðverkur
Syfja, sljóleiki
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Útbrot og mikill kláði
Gula
Skapgerðarbreytingar
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur
Þvagtregða, aukin tíðni þvagláta
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Flogaveikilyf
Novartis Healthcare
Virkt innihaldsefni: Karbamazepín
Skráð: 1.7.1988
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Ferskjulita Ferskjulita
Áletrun: H G C G
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 12 mm
Lögun: Sporöskjulaga Breidd: 5,5 mm
Kúpt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 4,5 mm
Styrkur: 200 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sögu um beinmergsbælingu
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu. Ekki ætti að nota lyfið nema gagnsemi þess fyrir móður sé talin vega þyngra en hugsanleg áhætta fyrir fóstrið.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum hefur það óveruleg áhrif á barnið.

Börn:

Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:

Aukin hætta er á aukaverkunum, minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Auk þeirra áhrifa sem flogaveikin hefur sjálf, getur lyfið skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið.

Áfengi:

Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Áfengi eykur sljóvgandi áhrif lyfsins og hraðar niðurbroti þess í lifur.

Annað:

Góð tannhirða minnkar líkur á því að munnþurrkur valdi skemmdum í tannholdi.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt og greipaldinsafi geta haft áhrif á virkni lyfsins.

Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Sjá allt (258)