Tarivid (afskráð júl. 2011)

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Tarivid (afskráð júl. 2011)

Ófloxacín er notað í skammtímameðferð við sýkingum af völdum sýkla sem eru næmir fyrir ófloxacíni. Lyfið verkar á þann hátt að það hindrar bakteríur að skipta sér, sem aftur leiðir til þess að þær geta ekki fjölgað sér og deyja fljótt. Töflurnar eru gefnar við endurteknum eða blönduðum þvagfærasýkingum, lekanda af völdum gónókokka sem framleiða penisilínasa og iðrasýkingum (t.d. salmonella). Innrennslislyfið er gefið við blönduðum þvagfærasýkingum af völdum Gram-neikvæðra klasasýkla, en þeir eru næmir fyrir ófloxacíni. Þetta er gert þegar ekki er unnt að koma við lyfjum til inntöku. Lyfið hefur skjóta bakteríudrepandi verkun. Lyfið er breiðvirkt og virkar bæði á Gram-jákvæða og Gram-neikvæða bakteríur. Ekkert krossónæmi er við aðra flokka sýkingalyfja.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

200-400 mg í senn 1-2svar á dag. Töflurnar takist inn með vatnsglasi. Töflunum má skipta.

Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði innan 1 klst.

Um 12 klst. eftir stakan skammt.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem þér var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur á strik og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Hafðu samband við lækni í öllum tilvikum. Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni. Mikilvægustu merki bráðrar ofskömmtunar eru einkenni eins og rugl, svimi, skert meðvitund og krampar auk einkenna frá meltingarfærum. Almenn meðferð er stuðningsmeðferð.

Lyfið er ætlað til skammtímanotkunar.

Aukaverkanir

Um 7% sjúklinga fá aukaverkanir.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Niðurgangur
Gula
Hraður hjartsláttur, lágur blóðþrýstingur
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sýklalyf
Sanofi - Aventis
Virkt innihaldsefni: Ófloxacín
Skráð: 1.10.1988 Afskráð: 1.7.2011
Útlit
Afskráð: 1.7.2011
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: MXI MXI
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 14 mm
Lögun: Ílöng Breidd: 7 mm
Kúpt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 4,5 mm
Styrkur: 200 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið getur skert viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Sjúklingar skulu forðast mikið sólarljós og sólarlampa meðan á meðferð stendur.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.