Lyfjaform:
Hylki til inntöku.
Fullorðnir: 1-2 g á sólarhring. Börn: 25 mg á hvert kg líkamsþyngdar á sólarhring. Lyfið nýtist betur ef það er tekið á fastandi maga, 1 klst. fyrir eða 2 klst. eftir máltíð.
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 1 klst.
Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Taktu síðan það sem eftir er af dagskammtinum með reglulegu millibili. Ekki taka tvo skammta í einu.
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Díkloxacillín er venjulega aðeins gefið í skamman tíma í senn.