Upplýsingar um lyfið
Sporanox

Ítrakónazól, virka efnið í Sporanox, hefur sveppadrepandi verkun. Það hefur áhrif á fleiri sveppategundir en önnur skyld sveppalyf, t.d. ketókónazól, og aukaverkanir þess eru fátíðari. Það er notað við ýmsum sveppasýkingum, t.d. innvortis, í leggöngum eða í húð og nöglum. Það er einnig notað til að fyrirbyggja sveppasýkingar hjá einstaklingum með bælt ónæmiskerfi, t.d. alnæmissjúkum. Ítrakónazól getur haft áhrif á lifrarstarfsemi en hætta á því verður meiri þegar viðkomandi er með lifrarsjúkdóm fyrir. Breytingar á lifrarstarfsemi ganga til baka ef skammtar eru minnkaðir eða meðferð er hætt.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Hylki til inntöku.

100-200 mg í senn 1-2svar á dag. Hylkin gleypist heil eftir máltíð.

Lyfið byrjar að verka innan nokkurra klst. frá inntöku. Þó líður lengri tími þangað til einkenni sýkingar minnka, allt eftir því hvar sýking er og hvaða sveppategund veldur henni.

Meira en vika eftir stakan skammt.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið svo lengi sem læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur á strik.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða. Ítrakónazól er þó í langflestum tilfellum aðeins notað í skamman tíma.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru einkenni frá meltingarvegi. Þessi einkenni koma fram hjá 5-6% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Óþægindi frá meltingarvegi
Gula
Hjartsláttarónot
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sveppalyf
Janssen-Cilag
Virkt innihaldsefni: Ítrakónazól
Skráð: 1.1.1995
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Bleikur Blár
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Hylki Lengd: 21,5 mm
Lögun: Lok/botn (hylki) Breidd: 0 mm
Þvermál: 7,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 0 mm
Styrkur: 100 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lítil reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Lyfið er aðeins notað í undantekningartilfellum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir
Sjá allt (47) Sjá allt (90)