Sotalol Mylan

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Sotalol Mylan

Sótalól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri, s.s. hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, t.d. hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða komist í miðtaugakerfið eða ekki. Sótalól hefur ekki sérhæfð áhrif á hjartavöðva. Þetta er ástæða fyrir mörgum aukaverkunum þess þegar það er notað við of háum blóðþrýstingi eða hjartsláttaróreglu. Sótalól hefur meiri áhrif á hjartsláttartruflanir en aðrir beta-blokkarar og það er notað við margs konar hjartsláttartruflunum. Sótalól stuðlar að samdrætti lungnaberkja og þar með þrengingu loftvega. Lyfið er því sjaldan notað fyrir sjúklinga með öndunarfærasjúkdóma á borð við astma, berkjubólgu eða lungnaþembu. Eins og aðrir beta-blokkarar hefur sótalól áhrif á stjórnun blóðsykurs og því þarf að gæta varúðar sé lyfið gefið sykursjúkum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

80-320 mg á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

Áhrif á hjartsláttarhraða: 2-3 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sjúkdómur getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef vart verður við öndunarerfiðleika eða skerta meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru tíðari eftir því sem skammtarnir eru stærri. Aukaverkanir eru oft verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hand- eða fótkuldi
Höfuðverkur, svimi, þreyta
Kviðverkir, niðurgangur, vindgangur
Meltingartruflanir
Ógleði og uppköst
Sjón- og heyrnartruflanir
Svefntruflanir
Truflanir á kynhvöt og kyngetu
Truflun á bragðskyni, aðrar skyntruflanir
Vöðvakrampar
Þunglyndi, kvíði, skapbreytingar
Bjúgur
Útbrot, hiti
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur
Verkur fyrir brjósti, mæði

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Beta-blokkar
Mylan
Virkt innihaldsefni: Sótalól
Skráð: 1.1.1994
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: 40 SL
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 6 mm
Deilistrik: Þykkt: 2 mm
Styrkur: 40 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Getur dregið úr áhrifum sótalóls á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.

Milliverkanir

Sé lyfið tekið með öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum geta áhrif þeirra magnast. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá allt (26) Sjá allt (112)