Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað ungum börnum.
Eldra fólk:
Lyfið er venjulega ekki notað.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Annað:
Azelainsýra má alls ekki berast í augu. Skolið augu tafarlaust með miklu vatni ef lyfið berst óvart í augu.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.