Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú sért með blæðingartilhneigingu
- þú sért með gláku
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum, hámarksskammtar eru minni.
Akstur:
Lyfið getur valdið þreytu og syfju og skert viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Áhrif áfengis á lyfið eru ekki að fullu þekkt, því er óæskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.
Annað:
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.