Upplýsingar um lyfið
Seloken

Seloken tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri, t.d. hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða komist í miðtaugakerfið eða ekki. Virka efnið metóprólól hefur tiltölulega sérhæfð áhrif á hjartavöðva þar sem það dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjartsláttartíðni. Vegna sérhæfni sinnar hefur það færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, það hefur t.d. lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það betur. Seloken er notað við háþrýstingi, hjartaöng, hjartsláttartruflunum og til að fyrirbyggja hjartadrep vegna kransæðastíflu. Metóprólól berst til miðtaugakerfisins og getur komið að gagni sem fyrirbyggjandi lyf við mígreni.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku og stungulyf í æð.

Töflur: 100-200 mg í senn 1-2svar á dag. Töflurnar takist inn á tóman maga.

20 mín. eftir gjöf í æð, innan við 1 klst. eftir inntöku.

3-6 klst. eftir stakan skammt.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef færri en 4 klst. eru til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sjúkdómur getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Ekki má hætta skyndilega.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef vart verður við öndunarerfiðleika eða skerta meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Aukaverkanir eru tíðari eftir því sem skammtar eru stærri. Almennt finna um 10% þeirra sem taka lyfið fyrir einhverjum aukaverkunum.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hand- eða fótkuldi
Höfuðverkur, svimi, þreyta
Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregða
Mæði við áreynslu
Ógleði
Svimi þegar staðið er upp
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur
Bjúgur
Gula
Skapgerðarbreytingar
Útbrot, kláði
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Verkur fyrir brjósti, mæði

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Beta-blokkar
Astra Zeneca
Virkt innihaldsefni: Metóprólól
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: A yfir BB
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 8 mm
Deilistrik: Þykkt: 3 mm
Styrkur: 50 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skerta lifrarstarfsemi
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Getur dregið úr áhrifum metóprólóls á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.

Milliverkanir

Sé lyfið tekið með öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum geta áhrif þeirra magnast. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá allt (26)
Getur haft áhrif á
Sjá allt (144)