Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Skammtar eru einstaklingsbundnir. Fullorðnir: 0,5-6 mg á dag í 3-4 skömmtum. Börn: 0,025-0,3 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag í 3-4 skömmtum.
Við flogum: 20-40 mín.
Við flogum: 6-12 klst.
Engin. Koffein getur vegið upp sljóvgandi áhrif lyfsins að einhverju leyti og því getur verið hressandi að fá sér kaffi eða aðra koffeindrykki ef vart verður við sljóleika.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Slepptu skammtinum ef meira en 1 klst. líður frá því að átti að taka hann. Haltu svo áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Einkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt, sérstaklega ef skammtar eru ekki minnkaðir smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við sljóleika, meðvitundarleysi eða önnur óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.
Þol myndast við áhrifum klónazepams á flogaveiki. Þessi þolmyndun tekur yfirleitt nokkra mánuði en eftir það hefur lyfið lítil eða jafnvel engin áhrif á sjúkdóminn.