Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með lágan blóðþrýsting eða blóðrásartruflanir
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með röskun á blóðhag
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið eykur líkur á fósturskaða og má alls ekki taka á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.