Lyfjaform:
Töflur og mixtúra til inntöku.
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1-2 töflur í senn 2svar á dag. Börn 6-12 ára: 1 tafla eða 10 ml í senn 2svar á dag. Börn 6 mánaða-5 ára: 5 ml í senn 2svar á dag. Börn 6 vikna-5 mánaða: 2,5 ml í senn 2svar á dag. Hver tafla inniheldur 80 mg trímetóprím og 400 mg súlfametoxazól. Hver ml mixtúru inniheldur 8 mg trímetóprím og 40 mg súlfametoxazól. Takist með mat eða drykk.
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.
Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Æskilegt er að fylgst sé reglulega með blóði þegar lyfið er notað í langan tíma.