Prednisolone Actavis

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Prednisolone Actavis

Prednisolone Actavis er notað við bólgusjúkdómum og ofnæmiseinkennum. Prednisólón, virka efnið í lyfinu, bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið, og hefur almennt sömu áhrif og svokallaðir sykursterar sem myndast í nýrnaberki. Lyfið er tekið inn við sjúkdómum sem valda miklum eða langvarandi bólgum og geta skemmt vefi líkamans með tímanum. Sjúkdómar sem valda þessum einkennum eru t.d. gigtsjúkdómar, astmi, alvarlegt ofnæmi og húðsjúkdómar. Prednisólón er einnig tekið inn til almennrar ónæmisbælingar þegar hennar er þörf eins og eftir líffæraflutning.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Skammtastærðir eru mjög einstaklingsbundnar og mismunandi eftir því hvaða sjúkdómi lyfið er notað við. Almennt eru upphafskammtar frekar stórir en skammtarnir eru síðan yfirleitt minnkaðir niður í minni viðhaldsskammt. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi eftir morgunmat, nema læknir nefni annað.

Lyfið byrjar mjög fljótt að virka en nokkrir dagar geta liðið þangað til að einkenni sjúkdóms byrja að hjaðna.

18-36 klst.

Mælt er með nægjanlegri neyslu á kalki og D-vítamíni á meðan meðferð stendur.

Geymist í lokuðum umbúðum varið ljósi við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ef lyfið hefur verið tekið í langan tíma þarf að minnka skammta smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Aukaverkanir eru tíðari eftir því sem lyfið er tekið lengur. Auk þess getur langtímanotkun leitt til vaxtarstöðvunar hjá börnum, sykursýki, gláku og beinþynningar. Skömmtum er haldið í lágmarki til að draga úr líkum á þessum áhrifum.

Aukaverkanir

Þrátt fyrir víðtæk áhrif prednisólóns í líkamanum er lítil hætta á aukaverkunum þegar lyfið er notað í skamman tíma, jafnvel þótt stórir skammtar séu notaðir. Hættan eykst við langvarandi meðhöndlun.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Beinþynning
Bjúgur, hækkaður blóðþrýstingur
Fitusöfnun í andliti og á bol
Skapgerðarbreytingar
Sykursýki versnar og dulin sykursýki getur brotist fram
Sýkingar og sár gróa hægar
Vaxtarhömlun hjá börnum
Vöðva- og húðrýrnun
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Barksterar
Actavis
Virkt innihaldsefni: Prednisólón
Skráð: 1.1.2011
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: C PJ
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd:
Lögun: Hringlaga Breidd:
Flöt Þvermál: 5,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 2,5 mm
Styrkur: 1 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir einhvern tíma átt við geðræn vandamál að stríða
- þú hafir nýlega verið bólusettur
- þú sért með gláku eða hækkaðan augnþrýsting
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með ómeðhöndlaða sýkingu
- þú sért með ómeðhöndlaðan sjúkdóm, t.d. magasár, háþrýsting, sykursýki eða beinþynningu
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Skammtar eru einstaklingsbundnir og háðir líkamsþyngd og sjúkdómi.

Eldra fólk:

Meiri líkur eru á aukaverkunum. Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Getur aukið líkur á myndun magasárs þegar prednisólón er tekið inn. Haltu neyslu áfengis í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Bannað í keppni.

Milliverkanir

Prednisólón getur haft áhrif á virkni annarra lyfja, t.d. flogaveikilyf, getnaðarvarnarlyf, bólgueyðandi gigtarlyf, lyf við sykursýki, lyf við gláku, ýmis hjartalyf, þvagræsislyf, lyf við malaríu, hægðalosandi lyf og önnur ónæmisbælandi lyf. Bólusetningar og ónæmisaðgerðir ætti að forðast samhliða meðferð á barksterum. Barksterar geta valdið blóðsykurshækkun og getur því þurft að leiðrétta skammta sykursýkilyfja.

Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Sjá allt (128)