Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með psoríasis
- þú sért með sykursýki
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Skammtar eru háðir líkamsþyngd og sjúkdómi.
Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Getur dregið úr áhrifum própranólóls, sérstaklega á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.