Pramipexole Portfarma

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Pramipexole Portfarma

Pramipexole Portfarma er notað við parkinsonsveiki eitt sér eða í samsetningu með levódópa. Sjúkdómseinkenni parkinsonsveiki stafa af ójafnvægi milli taugaboðefnanna asetýlkólíns og dópamíns í heila þaðan sem samhæfingu hreyfinga er stjórnað. Magn dópamíns minnkar vegna hrörnunar taugafrumna sem framleiða dópamín og vægi asetýlkólíns verður hlutfallslega of mikið. Þetta veldur sjúkdómseinkennum eins og hreyfiskerðingu, stífleika og skjálfta. Pramipexól, virka efnið í lyfinu, er sértækur dópamínviðtakaörvi og eykur áhrif dópamíns sem dregur úr sjúkdómseinkennum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Skammtastærðir eru einstaklingabundnar. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

Skammtur er aukinn smám saman á 5-7 daga fresti þar til æskileg verkun fæst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita, varið ljósi þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ekki hætta töku lyfs nema í samráði við lækni. Skammtur er smám saman minnkaður á nokkrum dögum.

Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal haft samband við lækni eða bráðamóttöku.

Ráðlagt er að fara í reglubundið eftirlit hjá lækni. Mælt er með að fara reglulega í augnskoðun og ef sjóntruflanir koma fram.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Bjúgur á útlimum
Draumarugl
Hreyfingatregða
Höfuðverkur, minnisleysi
Lágur blóðþrýstingur
Ógleði, uppköst, hægðatregða
Sjóntruflanir
Sundl, svefndrungi
Svefnleysi, eirðarleysi
Truflanir á stjórn og hegðun
Þreyta
Þyngdartap
Rugl, ofskynjanir
Útbrot og kláði

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf við Parkinsonsjúkdómi
Portfarma
Virkt innihaldsefni: Pramipexól
Skráð: 1.2.2010
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: 0
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd:
Lögun: Hringlaga Breidd:
Kúpt Þvermál: 6 mm
Deilistrik: Þykkt: 3 mm
Styrkur: 0,088 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með geðrofssjúkdóm
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið getur hamlað mjólkurmyndun. Lyfið á ekki að nota samhliða brjóstagjöf.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:

Skammtastærðir eru einstaklingsbundnar.

Akstur:

Lyfið getur haft slævandi áhrif og skert aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Áfengi getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.