Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með gláku
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með þvagtregðu eða stækkun í blöðruhálskirtli
Meðganga:
Ekki nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 1 árs.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir. Eldra fólk getur þó verið viðkvæmara fyrir sljóvgandi áhrifum lyfsins en aðrir.
Akstur:
Lyfið hefur róandi áhrif og skerðir aksturshæfni. Ekki aka bíl eftir notkun lyfsins.
Áfengi:
Lyfið eykur verkun áfengis. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Inniheldur alkóhól. Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.