Parlodel (afskráð jan. 2012)

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Parlodel (afskráð jan. 2012)

Brómókriptín, virka efnið í Parlodel, líkist taugaboðefninu dópamíni og hefur að hluta til sömu áhrif og það. Brómókriptín er notað við sjúkdómum þar sem dópamín skortir eða áhrif þess eru of lítil. Dópamín og brómókriptín hamla framleiðslu prólaktíns, hormóns sem örvar mjólkurmyndun í brjóstum. Brómókriptín gagnast við of mikilli mjólkurmyndun hjá konum eftir fæðingu, og ófrjósemi sem stafar af of miklu magni prólaktíns í blóði. Hjá sjúklingum með æxli í heiladingli, og æxlið veldur offramleiðslu vaxtar- eða mjólkurhormóna, nýtist lyfið vel. Brómókriptín má líka nota sem viðbótarmeðferð með levódópa (sjá levódópa) hjá sjúklingum með parkinsonsveiki. Það er þegar áhrif af levódópa fara dvínandi eða áhrif og aukaverkanir levódópa eru mjög sveiflukennd.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur og hylki til inntöku.

Skammtar eru misjafnir eftir sjúkdómi og ástandi sjúklings. Oft er byrjað á litlum skömmtum og þeir síðan auknir þangað til viðunandi verkun næst. Töflurnar og hylkin takist inn með vatnsglasi og mat.

Misjafnt eftir ástandi sjúklings.

Misjafn eftir ástandi sjúklings. Áhrif á mjólkurmyndun vara t.d. mun lengur en áhrif á einkenni parkinsonsveiki.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið sem fyrst. Ef fleiri en 4 klst. líða frá því að þú áttir að taka skammtinn skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, einkennin geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega eru ekki líklegir til að valda miklum óþægindum. Hafið samband við lækni ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni.

Án vandkvæða. Þó getur verið ástæða til að láta mæla magn hormóna í blóði reglulega.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði (3%) en ef lyfið er tekið með mat kemur hún síður fram. Aukaverkanir lyfsins eru algengari þegar stórir skammtar eru teknir.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Ógleði
Skapgerðarbreytingar
Útbrot
Mæði

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Kvensjúkdómalyf
Meda
Virkt innihaldsefni: Brómókriptín
Skráð: 1.11.1979
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: X C SANDOZ
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 7 mm
Deilistrik: Þykkt: 3 mm
Styrkur: 2,5 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir átt við geðræn vandamál að stríða
- þú hafir fengið magasár
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið. Lyfið hamlar mjólkurmyndun.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið getur skert aksturshæfni.

Áfengi:

Áfengi getur aukið á aukaverkanir lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.