Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
Annað:
Virkir áfengissjúklingar mega ekki taka lyfið. Sjúklingar með lifrarsjúkdóm mega ekki taka lyfið.
Ávanahætta:
Parkódín getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.
Íþróttir:
Leyft við æfingar en eftirlit í keppni með morfín/kódein hlutfalli.