Panocod (afskráð júl. 2011)

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Panocod (afskráð júl. 2011)

Panocod inniheldur tvö virk efni, paracetamól og kódein. Paracetamól hefur verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Verkjastillandi verkun þess byggist á áhrifum á heilann og á þá vefi þar sem verkurinn á upptök sín. Paracetamól ertir ekki magaslímhúð og hentar því þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga. Kódein hefur einnig verkjastillandi áhrif. Það er skylt morfíni en hefur nokkuð veikari áhrif. Kódein breytist að hluta til í morfín í líkamanum og er það talið skýra verkjastillandi áhrif þess. Auk þess hefur kódein nokkra hóstastillandi verkun. Lyfið er notað við verkjum eins og höfuðverk, tíðaverk og tannpínu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur og freyðitöflur til inntöku.

1-2 töflur í senn 1-4 sinnum á dag. Hver tafla inniheldur 500 mg paracetamól og 30 mg kódein. Freyðitöflurnar leysist upp í ½ glasi af vatni.

30-60 mín.

Verkjastillandi áhrif: 4-6 klst. Hitalækkandi áhrif: Um 8 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu skammtinn sem fyrst ef þörf er á, annars má sleppa skammtinum og halda töku lyfsins áfram þegar þörf krefur. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hætta má töku lyfsins þegar ekki er lengur þörf fyrir það.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Mjög stórir skammtar geta valdið lifrarskemmdum, en einkenni eitrunar koma oft ekki fram fyrr en eftir nokkra daga. Hafðu því alltaf samband við lækni ef mjög stórir skammtar eru teknir, jafnvel þótt engra einkenna verði vart.

Langvarandi notkun lyfsins getur valdið nýrna- og lifrarskemmdum. Kódein getur auk þess valdið ávana og fíkn, sérstaklega ef teknir eru stórir skammtar.

Aukaverkanir

Lyfið veldur sjaldan aukaverkunum og þolist yfirleitt vel.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Ógleði, hægðatregða
Þreyta
Gula
Útbrot og mikill kláði

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Verkjalyf
Sanofi - Aventis
Virk innihaldsefni: Kódein, Paracetamól
Skráð: 1.1.1992 Afskráð: 1.7.2011
Útlit
Afskráð: 1.7.2011
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 25,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 3,5 mm
Styrkur: 500 + 30 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Annað:

Virkir áfengissjúklingar mega ekki taka lyfið. Sjúklingar með lifrarsjúkdóm mega ekki taka lyfið.

Ávanahætta:

Panocod getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.

Íþróttir:

Leyft við æfingar en eftirlit í keppni með morfín/kódein hlutfalli.