Upplýsingar um lyfið
Oracea

Doxýcýklín tilheyrir flokki tetracýklín sýklalyfja. Sýklalyf í þessum flokki eru breiðvirk, þ.e. þau virka á margar tegundir sjúkdómsvaldandi baktería. Oracea er ætlað til meðferðar við nabba- og graftarmyndun hjá fullorðnum einstaklingum með rósroða í andliti. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur doxýcýklín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans. Því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Hylki til inntöku.

40 mg á dag, að morgni. Hylkin takist með vatnsglasi. Má ekki taka þau inn útafliggjandi.

Ekki að fullu þekkt.

24 klst. eftir stakan skammt.

Engin.

Geymist í lokuðum, upprunalegum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Doxýcýklín er venjulega ekki notað lengi í senn. Meta skal meðferðina eftir 6 vikur og eins 4 vikum eftir að meðferð lýkur.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru sýkingar í efri öndunarvegi, niðurgangur og hár blóðþrýsingur.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur
Kviðverkir, niðurgangur
Kvíði
Munnþurrkur
Sveppasýking
Sýking í efri öndunarvegi
Verkir
Háþrýstingur
Mislitun glerungs hjá börnum
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Mikill höfuðverkur, ógleði og uppköst
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sýklalyf
Galderma Nordic
Virkt innihaldsefni: Doxýcýklín
Skráð: 1.12.2011
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Brúnn Brúnn
Áletrun: 40 GLD
Mynd:
Gerð: Hylki Lengd:
Lögun: Lok/botn (hylki) Breidd:
Þvermál:
Deilistrik: Þykkt:
Styrkur: 40 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú eigir tilhneigingu til að fá sveppasýkingu
- þú sért með ofnæmi fyrir tetracýklín lyfjum
- þú sért með skerta lifrarstarfsemi
- þú sért með sýruþurrð
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið getur aukið líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur fræðilega haft áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Getur dregið úr áhrifum lyfsins, sérstaklega hjá áfengissjúklingum.

Annað:

Sólarljós eykur líkur á ljósnæmi meðan á meðferð stendur.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.