Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Ein 35 mg tafla vikulega, alltaf á sama vikudegi. Töflurnar takist í uppréttri stöðu a.m.k. ½ klst. áður en fyrstu máltíðar eða drykkjar dagsins er neytt eða önnur lyf eru tekin. Töflurnar gleypist heilar með fullu glasi af venjulegu vatni. Má hvorki sjúga þær né tyggja. Ekki má leggjast út af næstu 30 mín. eftir inntöku.
Áhrif sjást innan mánaðar.
A.m.k. 1 vika.
Nauðsynlegt er að neyta kalkríkrar fæðu og D-vítamíns.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Haltu síðan áfram að taka eina töflu á viku sama dag og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sjúkdómurinn getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef teknir eru of stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni. Einnig skalt þú drekka mjólk eða taka inn sýrubindandi lyf til að draga úr líkum á því að einkenni komi fram.
Án vandkvæða.