Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Við beinþynningu: 5 mg á dag. Við Pagets sjúkdómi: 30 mg daglega í 2 mánuði. Töflurnar takist í uppréttri stöðu a.m.k. ½ klst. áður en fyrstu máltíðar eða drykkjar dagsins er neytt eða önnur lyf eru tekin. Töflurnar gleypist heilar með fullu glasi af venjulegu vatni. Má hvorki sjúga þær né tyggja. Ekki má leggjast út af næstu 30 mín. eftir inntöku.
Ekki að fullu þekkt.
U.þ.b. 24 klst.
Nauðsynlegt er að neyta kalkríkrar fæðu og D-vítamíns.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því, en a.m.k. 2 klst. eftir máltíð. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sjúkdómurinn getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru of stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni. Einnig skalt þú drekka mjólk eða taka inn sýrubindandi lyf til að draga úr líkum á því að einkenni komi fram.
Án vandkvæða.