Upplýsingar um lyfið
Optimol

Tímólól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum eru oftast notuð við háþrýstingi eða hjartsláttaróreglu vegna áhrifa þeirra á hjarta og æðar. Tímólól er þó aðeins notað í augnlyf við gláku. Gláka stafar af ójafnvægi milli framleiðslu á augnvökva og frárennslis hans, vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar þrengjast oft æðar til sjónhimnu og blóðflæðið um þær minnkar. Ef ekki er brugðist við í tíma getur þetta valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Gláka er flokkuð í tvær tegundir, þrönghorns- og gleiðhornsgláku, eftir því hvernig frárennsli augnvökvans er hindrað. Mismunandi lyf geta átt við eftir því um hvora tegundina er að ræða. Tímólól lækkar augnþrýsting með því að draga úr framleiðslu á augnvökva. Optimol er notað við gláku af öllum tegundum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Augndropar.

1 dropi í auga 2svar á dag.

15-20 mín.

Allt að 24 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.

Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Fylgjast þarf reglulega með augnþrýstingi til að meta áhrif lyfsins. Einnig getur þurft að fylgjast með aukaverkunum þess, sérstaklega hvort það hefur áhrif á hjarta.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru sjóntruflanir og erting í augum. Aðrar aukaverkanir eru flestar mjög sjaldgæfar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Sjóntruflanir, erting í augum
Roði og bólga í augum eða augnlokum
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Glákulyf
Santen Oy
Virkt innihaldsefni: Tímólól
Skráð: 1.1.1987
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með lungnaþembu eða astma
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Eins og á við um önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Rotvarnarefni í augndropunum geta skemmt mjúkar augnlinsur.

Íþróttir:

Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.

Milliverkanir

Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 5 mínútur á milli ídreypinga.

Sjá allt (24) Sjá allt (74)