Lyfjaform:
Forðahylki til inntöku.
75-225 mg á dag í 1-3 skömmtum. Forðahylkin gleypist heil með miklum vökva fyrir máltíð.
Lyfið nær hámarksþéttni í blóði eftir 3-7 klst.
12-24 klst.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að taka lyfið. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.
Æskilegt er að fara reglulega í eftirlit til læknis til að meta áhrif lyfsins á lifur, nýru, blóðhag og maga.