Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
2,5-15 mg á dag. Takist með fyrstu máltíð dagsins.
30 mín.
24 klst. eftir stakan skammt.
Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er hluti af meðferð.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu skammtinn fyrir næstu máltíð nema að þá sé kominn tími á næsta skammt. Ef þú átt að taka annan skammt fyrir næstu máltíð skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Hafðu strax samband við lækni. Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst. Fylgdu fyrirmælum læknis um viðbrögð við of lágum blóðsykri. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.
Engin sérstök vandamál. Vegna sykursýkinnar er þó æskilegt að fylgjast reglulega með sykri í blóði eða þvagi. Einnig getur þurft að fylgjast með sjón og lifrar-, nýrna- og hjartastarfsemi.