Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
½-4 töflur á dag. Takist með vatnsglasi að morgni á fastandi maga. Hver tafla inniheldur 2,5 mg amílóríð og 25 mg hýdróklórtíazíð.
Um 2 klst.
Um 12-24 klst.
Forðastu mat sem inniheldur mikið kalíum, t.d. þurrkaða ávexti og heilsusalt sem svo er nefnt.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur ef einn skammtur gleymist. Best er að taka skammtinn um leið og þú manst eftir honum en óæskilegt er að taka lyfið að kvöldi þar sem það getur kallað á tíð þvaglát um nóttina. Ekki taka tvo skammta í einu.
Einkenni sjúkdóms geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Yfirleitt án vandkvæða, en æskilegt er að fylgst sé reglulega með nýrnastarfsemi og jafnvægi salta í líkamanum.