Miacalcic Nasal

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Miacalcic Nasal

Miacalcic Nasal er notað við Pagets sjúkdómi. Pagets sjúkdómur er sjaldgæfur sjúkdómur sem leggst á bein líkamans. Endurnýjun beinanna verður ekki sem skyldi, þau afmyndast og verða brothætt. Orsök sjúkdómsins er ókunn. Kalsítónín, virka efni lyfsins, er líka notað í meðferð við beinþynningu hjá konum með samfallsbrot í hrygg eftir tíðahvörf. Sjúklingar þurfa nauðsynlega að fá uppbót af kalki og D-vítamíni. Kalsítónín er líka notað við háu kalsíumgildi í blóði af ýmsum orsökum. Það bælir virkni beinæta og dregur þannig úr umbroti beinvefja þegar um er að ræða aukna beinupptöku, svo sem við beinþynningu. Kalsítónín hefur verkjastillandi áhrif.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Nefúði.

Einn úðaskammtur (200 a.e.) einu sinni á dag.

Innan við 1 klst.

Ekki að fullu þekktur.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Eftir að umbúðir hafa verið rofnar geymist lyfið í 4 vikur við stofuhita. Lyfið skal geyma í uppréttri stöðu og það má hvorki frjósa né hrista.

Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Vitað er að ógleði, uppköst, roði og sljóleiki eru skammtaháð þegar lyfið er gefið utan meltingarvegar. Ef stórir skammtar eru teknir eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni. Meðferð er við einkennum.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Staðbundnar aukaverkanir eru yfirleitt vægar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Bólga í nefi, sár og blóðnasir
Breyting á bragðskyni og lyktarskyni
Höfuðverkur, svimi, þreyta
Kviðverkir, niðurgangur
Liðverkir, bakverkir eða vöðvaverkir
Ógleði
Roði
Sýking í öndunarvegi
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf sem verka á kalsíumjafnvægi líkamans
Novartis Healthcare
Virkt innihaldsefni: Kalsítónín
Skráð: 1.3.2002
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir lágt kalsíumgildi i blóði
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið á ekki að nota á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Sljóleiki og þreyta geta komið fram og því ætti ekki að aka bíl á meðan.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á virkni lyfsins.

Annað:

Ef ekki er hægt að nota nefúðalyfið má reyna notkun stungulyfs. Hjá sjúklingum, sem líklegt er talið að hafi ofnæmi fyrir kalsítóníni, skal íhuga húðpróf þar sem notuð er þynnt, sæfð lausn af stungulyfi áður en meðferð er hafin.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.