Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
1 tafla á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Hver tafla inniheldur 50 mg lósartan og 12,5 mg hýdróklórtíazíð eða 100 mg lósartan og 25 mg hýdróklórtíazíð. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.
Almennt nást hámarks blóðþrýstingslækkandi áhrif innan 3ja vikna frá upphafi meðferðar.
A.m.k. 24 klst. eftir stakan skammt.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Yfirleitt án vandkvæða. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með nýrnastarfsemi og jafnvægi salta í líkamanum.