Upplýsingar um lyfið
Logimax

Logimax inniheldur tvö virk efni, felódipín og metóprólól, og er notað við háum blóðþrýstingi. Felódipín tilheyrir lyfjaflokki sem kallast kalsíumblokkarar. Lyf í honum hindra flæði kalsíums inn í vöðvafrumur, en kalsíum er nauðsynlegt fyrir samdrátt vöðvafrumna. Vöðvafrumur í líkamanum innihalda mismikið af kalsíum og eru því ekki allar jafn háðar flæði kalsíums inn í frumuna. Áhrifa kalsíumblokkara gætir því hjá frumum með lítið af kalsíum, þ.e. vöðvafrumur í æðaveggjum og hjartavöðva. Kalsíumblokkarar eru flokkaðir innbyrðis eftir því hvort áhrif þeirra beinist aðallega að æðum eða hjarta. Felódipín hefur fyrst og fremst æðavíkkandi áhrif. Það víkkar bæði kransæðar og slagæðar, blóðþrýstingur lækkar og blóðflæði eykst til hjartavöðva. Áhrif felódipíns á hjartavöðva eru minni en hjá öðrum lyfjum í þessum flokki. Metóprólól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri, t.d. hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, t.d. hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta og hvort þeir komist í miðtaugakerfið eða ekki. Metóprólól hefur tiltölulega sérhæfð áhrif á hjartavöðva, að minnka samdráttarkraft hjartans og hjartsláttartíðni og draga með því úr blóðþrýstingi. Vegna sérhæfni sinnar hefur það færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, t.d. hefur það lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það betur. Í lyfinu Logimax eru þessi tvö virku efni gefin saman til þess að ná fram enn meiri lækkun á blóðþrýstingi en mögulegt er þegar þau eru gefin hvort í sínu lagi. Lyfið á ekki að nota í upphafsmeðferð hjá sjúklingum sem hafa ekki áður fengið lyfjameðferð við háþrýstingi.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Forðatöflur til inntöku.

1 tafla að morgni. Ef þörf er á má auka skammtinn í 1 töflu af Logimax forte. Takist inn milli mála eða eftir léttan málsverð. Forðatöflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki brjóta þær, mylja né tyggja. Hver tafla inniheldur 5 mg felódipín og 50 mg metóprólól.

Um 1-3 klst.

24 klst. eftir stakan skammt.

Greipaldinsafi getur aukið áhrif felódipíns og því má ekki neyta hans samtímis lyfinu.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Einkenni sjúkdóms geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef vart verður við öndunarerfiðleika eða skerta meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Lyfið þolist almennt vel og aukaverkanir eru vægar og skammtaháðar, þ.e. meira áberandi við stærri skammta. Algengustu aukaverkanirnar eru höfuðverkur, sem kemur fyrir hjá um 11% þeirra sem taka lyfið, ökklabjúgur og roði í andliti. Flestar aukaverkanir eru vegna æðavíkkunar af völdum felódipíns.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hand- eða fótkuldi
Höfuðverkur, svimi, þreyta
Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregða
Ógleði og uppköst
Roði í andliti
Bjúgur í útlimum
Hjartsláttartruflanir, hraður eða hægur hjartsláttur
Gula
Skapgerðarbreytingar
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Verkur fyrir brjósti, mæði
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Beta-blokkar
Astra Zeneca
Virk innihaldsefni: Felódipín, Metóprólól
Skráð: 1.4.1997
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Ferskjulita Ferskjulita
Áletrun: A yfir FG
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 10 mm
Deilistrik: Þykkt: 5 mm
Styrkur: 5 + 50 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með aðra hjarta- eða æðasjúkdóma
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Getur dregið úr áhrifum lyfsins á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.

Milliverkanir

Sé lyfið tekið með öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum geta áhrif þeirra magnast. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá allt (26)
Getur haft áhrif á
Sjá allt (159)