Letrozol Actavis

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Letrozol Actavis

Letrozol Actavis tilheyrir flokki krabbameinslyfja sem hafa letjandi verkun á ensím í líkamanum. Ensím örva framleiðslu á hinum ýmsu efnum sem líkaminn framleiðir, og þar á meðal estradíól. Virka efnið letrózól dregur úr myndun estradíóls með því að hindra áhrif ensímkerfis sem nefnist arómata ensímsamstæðan. Það eitt að lækka styrk estradíóls í blóði hefur jákvæð áhrif á brjóstakrabbamein. Letrozol Actavis er ætlað konum eftir tíðahvörf.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

2,5 mg einu sinni á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Ekki að fullu þekkt.

Ekki að fullu þekktur.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Margar aukaverkanir sem verður vart þegar lyfið er tekið má rekja til undirliggjandi sjúkdóms eða eðlilegra afleiðinga estrógenskorts. Algengustu aukaverkanir lyfsins eru hitakóf, liðverkir, ógleði og þreyta.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hárlos
Háþrýstingur
Hitakóf, aukin svitamyndun
Höfuðverkur, sundl, þreyta
Kólesterólhækkun
Lystarleysi, aukin matarlyst, þyngdaraukning
Meltingartruflanir, hægðatregða og niðurgangur
Ógleði og uppköst
Vanlíðan
Verkir
Þunglyndi
Beinþynning
Bjúgur í útlimum
Útbrot
Blæðing úr leggöngum
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
Verkur fyrir brjósti, mæði
Þvagfærasýkingar
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf með verkun á innkirtla
Actavis
Virkt innihaldsefni: Letrózól
Skráð: 1.9.2011
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Gulur Gulur
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd:
Lögun: Hringlaga Breidd:
Kúpt Þvermál:
Deilistrik: Þykkt:
Styrkur: 2,5 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með beinþynningu
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið má ekki nota á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið má ekki nota samhliða brjóstagjöf.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið þreytu og sundli. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Bannað í og utan keppni.