Upplýsingar um lyfið
Lamisil

Lamisil er sveppalyf sem er notað við sveppasýkingum í húð eða undir nöglum. Eftir inntöku eða útvortis notkun safnast lyfið fyrir í fituvef undir húðinni og því vara áhrif þess lengi eftir hvern skammt. Áhrifin eru meiri eftir inntöku en þegar lyfið er notað útvortis, töflurnar eru því gefnar við erfiðum sýkingum og við sýkingum undir nöglum. Virka efnið terbínafín virkar sveppadrepandi eða sveppahemjandi á flestar tegundir sveppa sem algengt er að valdi sýkingum í húð. Milliverkanir terbínafíns við önnur lyf eru fátíðari en almennt gildir um sveppalyf til inntöku, og meðferðartími þess er oftast styttri.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Útvortis krem og hlaup og töflur til inntöku.

Krem, hlaup: Borið á sýkt húðsvæði 1 sinni á dag í 1 viku. Töflur, fullorðnir og börn þyngri en 40 kg: 250 mg á dag; börn eldri en 2ja ára, undir 20 kg: 62,5 mg á dag; börn 20-40 kg: 125 mg á dag. Töflurnar takist inn með vatnsglasi.

Misjafnt eftir staðsetningu sýkingar, lyfjaformi sem er notað og næmi sveppa fyrir lyfinu.

Töflur: Lyfið situr eftir í fitulagi undir húð í 2-3 mánuði eftir að meðferð er lokið.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Notaðu lyfið svo lengi sem læknir segir fyrir um. Hætti lyfjanotkun of snemma aukast líkur á því að sýkingin nái sér aftur á strik.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef barn notar lyfið, notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru mjög sjaldgæfar og vægar eftir útvortis notkun. Um 10% þeirra sem taka lyfið inn finna fyrir einhverjum aukaverkunum, oftast í upphafi meðferðar, en algengt er að einkennin hverfi þegar líður á meðferð. Aukaverkanirnar í töflunni hér fyrir neðan eiga við töfluform lyfsins.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur
Kviðverkir, niðurgangur og meltingartruflanir
Mettunartilfinning, lystarleysi
Ógleði
Gula
Útbrot og mikill kláði
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sveppalyf við húðsjúkdómum
Novartis Healthcare
Virkt innihaldsefni: Terbínafín
Skráð: 1.4.1993
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: LAMISIL 250
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd:
Lögun: Hringlaga Breidd:
Þvermál:
Deilistrik: Þykkt:
Styrkur: 250 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Útvortis lyfjaform: Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið. Töflur: Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Töflur: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára. Krem: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára án samráðs við lækni. Hlaup: Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.