Upplýsingar um lyfið
Klófen-L

Klófen-L er bólgueyðandi með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efnið díklófenak dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau stuðla m.a. að bólgumyndun. Díklófenak er notað við ýmsum gigtsjúkdómum, þvagsýrugigt, verkjum og bólgum af ýmsum toga, m.a. eftir slys og aðgerðir, tíðaverkjum og bakverkjum. Notkun þess við gigtsjúkdómum kallar oft á langtímameðferð en bólgueyðandi og verkjastillandi meðferð með díklófenaki er oftast skammtímameðferð.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Forðahylki til inntöku.

100 mg einu sinni á dag, með mat.

Lyfið nær hámarksþéttni í blóði eftir 3-7 klst.

12-24 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að taka lyfið. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Æskilegt er að fara reglulega í eftirlit til læknis til að meta áhrif lyfsins á lifur, nýru, blóðhag og maga.

Aukaverkanir

Óþægindi frá meltingarvegi eru algengustu aukaverkanir lyfsins. Þau hverfa oftast eftir inntöku lyfsins í nokkra daga.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, svimi
Kviðverkir, uppþemba, vindgangur
Lystarleysi
Ógleði, uppköst, niðurgangur, meltingartruflanir
Útbrot, kláði
Gula
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf
Actavis
Virkt innihaldsefni: Díklófenak
Skráð: 1.1.1993
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Bleikur Rauðbrúnn
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Hylki Lengd: 17,5 mm
Lögun: Lok/botn (hylki) Breidd: 0 mm
Þvermál: 6 mm
Deilistrik: Þykkt: 0 mm
Styrkur: 100 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með blæðingartilhneigingu
- þú sért með háan blóðþrýsting
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
- þú sért með magabólgu
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má taka lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni díklófenaks.

Getur haft áhrif á
Sjá allt (169)