Lyfjaform:
Töflur og mixtúra til inntöku.
Fullorðnir: 800-2000 mg í senn 2svar á dag. Börn: 12,5-25 mg á hvert kg líkamsþyngdar í senn 2-3svar á dag. Lyfið takist inn á fastandi maga, 1 klst. fyrir eða 2 klst. eftir máltíð. Mixtúran hristist fyrir notkun.
Misjafnt eftir því hvar sýking er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni á 30-60 mín.
Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá. Uppleyst mixtúra geymist í 2 vikur í kæli.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Taktu síðan það sem eftir er af dagsskammtinum með reglulegu millibili. Ekki taka tvo skammta í einu.
Taktu lyfið svo lengi sem læknir segir til um eða ljúktu við þann skammt sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur á strik og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Fenoxýmetýlpenicillín er venjulega gefið í skamman tíma í senn. Aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu getur fylgt langtímanotkun.