Upplýsingar um lyfið
Katópríl

Katópríl, sem inniheldur virka efnið kaptópríl, tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í þessum flokki hamla myndun angíótensíns II, en það er eitt öflugasta æðaþrengjandi efni í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II útskilnað vatns í nýrum, við það eykst rúmmál blóðs og stuðlar þannig enn frekar að hækkun blóðþrýstingsins. Lyfin hindra líka niðurbrot á æðavíkkandi efni í líkamanum, bradýkíníni. Katópríl er notað við háþrýstingi og hjartaöng og til þess að minnka álag á hjartað hjá sjúklingum með hjartabilun. Þegar lyfið er gefið við hjartabilun eru þvagræsilyf oft notuð samtímis. Katópríl er líka notað til að fyrirbyggja nýrnaskemmdir hjá sykursýkisjúklingum með insúlínháða sykursýki.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

12,5-150 mg á dag.

Áhrif á háþrýsting: 15-30 mín.

Áhrif á háþrýsting: 6 klst. eftir stakan skammt, 8-12 klst. eftir töku lyfsins í lengri tíma.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ástand getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Æskilegast er að minnka skammtana smám saman frekar en að hætta skyndilega. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Lyfið getur haft áhrif á nýrnastarfsemi og blóðfrumur. Fylgjast þarf reglulega með blóðmynd og þvagi meðan á meðferð stendur.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hárlos
Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregða
Munnþurrkur
Ógleði og uppköst
Svefntruflanir
Svimi
Truflun á bragðskyni
Þurr hósti
Gula
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hjartsláttartruflanir
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
Verkur fyrir brjósti
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið
Actavis
Virkt innihaldsefni: Kaptópríl
Skráð: 1.10.1995
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 8 mm
Deilistrik: Þykkt: 3 mm
Styrkur: 25 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin það á hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.