Lyfjaform:
Hylki til inntöku.
50-200 mg á dag í 1-3 skömmtum. Hylkin gleypist heil með mat, mjólk eða sýrubindandi lyfi.
Verkjastillandi og hitalækkandi áhrif byrja að koma fram innan 1 klst. Bólgueyðandi áhrif sjást eftir lengri tíma.
Ekki að fullu þekktur.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita, varið ljósi, þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að nota lyfið. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.
Ráðlegt er að fara reglulega í augnskoðun sé lyfið tekið lengi. Við langtímanotkun getur lyfið líka valdið magasári eða magablæðingu. Því er nauðsynlegt að fara reglulega í eftirlit til læknis sé lyfið notað í langan tíma.