Hjartamagnýl

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Hjartamagnýl

Hjartamagnýl inniheldur virka efnið asetýlsalicýlsýru. Í stærri skömmtum (500-1000 mg) hefur efnið bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi verkun en í minni skömmtum (75-150 mg) hemur efnið samloðun blóðflaga og lengir storknunartíma blóðs. Hjartamagnýl er notað til blóðþynningar. Það er notað fyrirbyggjandi gegn blóðtappamyndun, það minnkar líkur á blóðþurrðareinkennum frá heila og á slagi og er líka notað fyrirbyggjandi hjá sjúklingum með hjartaöng og hjartadrep. Asetýlsalicýlsýra virkar nokkuð ertandi á magaslímhúð en Hjartamagnýl inniheldur magnesíum oxíð og það minnkar líkur á magaertingu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

75?150 mg daglega.

40?60 mín.

Ekki þekktur.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef það gleymist yfir daginn skaltu sleppa skammtinum sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni. Einkenni ofskömmtunar eru suð fyrir eyrum, heyrnardeyfð, höfuðverkur, svimi og hraður andardráttur.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Brjóstsviði, magaóþægindi
Óeðlilegar blæðingar
Útbrot, kláði
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
Mæði eða öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Segavarnarlyf
Actavis
Virkt innihaldsefni: Asetýlsalicýlsýra
Skráð: 1.6.2007
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 6,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 3 mm
Styrkur: 75 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú hafir fengið magasár
- þú sért með astma
- þú sért með blæðingasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið fer yfir fylgju. Ekki er mælt með notkun lyfsins á meðgöngu vegna takmarkaðrar reynslu af notkun þess hjá þunguðum konum. Ekki skal nota lyfið síðustu 3 mánuði meðgöngunnar nema læknir hafi ráðlagt annað. Ekki skal nota lyfið síðustu 5 daga fyrir væntanlega fæðingu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Annað:

Lyfið getur valdið ofnæmi.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Lyfið getur minnkað áhrif þvagræsilyfja og blóðþrýstingslækkandi lyfja. Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu.

Sjá allt (93)