Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Fullorðnir: 1,5-4,5 g á dag í 2-3 skömmtum. Börn: 30-50 mg á hvert kg líkamsþyngdar á sólarhring. Töflurnar takist inn milli mála.
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Hámarksvirkni lyfsins kemur fram eftir u.þ.b. 1 klst. frá töku lyfsins.
6-8 klst. eftir stakan skammt.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Taktu síðan það sem eftir er af dagskammtinum með reglulegu millibili. Ekki taka tvo skammta í einu.
Taktu lyfið svo lengi sem læknir segir til um eða ljúktu við þann skammt sem þér var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur á strik og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Lyfið er yfirleitt aðeins notaði í skamman tíma í senn.