Upplýsingar um lyfið
Haldol

Haldol inniheldur virka efnið halóperídól. Lyfið er sefandi og það dregur mikið úr sturlunareinkennum sem fylgja geðklofa, oflæti og elliglöpum. Það hefur einnig áhrif á drykkjuóráð (delerium tremens), alvarlegustu fráhvarfseinkenni drykkjusýki. Talið er að þessi einkenni komi fram vegna of mikillar virkni ákveðinna taugaboðefna í heila þaðan sem skapferli, hegðun og skynjun er stjórnað. Halóperídól minnkar virkni eins þessara boðefna, eða dópamíns. Halóperídól verkar einnig kvíðastillandi og hemur uppsölu en hefur mjög veika, róandi og svæfandi verkun.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku og stungulyf í æð eða vöðva.

Langvinn geðveiki: 2-10 mg á dag en skömmtun er mjög einstaklingsbundin, allt að 100 mg á dag. Ógleði og uppköst: 0,5 mg í senn 2svar á dag. Minni háttar geðkvillar: 0,5-1 mg í senn 2svar á dag. Börn eldri en 5 ára. ½ af skammti fullorðinna. Börn yngri en 5 ára: ¼ af skammti fullorðinna. Stungulyfið er eingöngu notað á sjúkrahúsum.

20-30 mín. eftir notkun stungulyfs, lengur en 1 klst. ef lyfið er tekið inn.

6-24 klst. eftir inntöku, forðalyf getur haft verkun í allt að 4 vikur.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram ef töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einkenni eins og sljóleika, slappleika eða stífleika í vöðvum skal hafa samband við lækni.

Notkun til lengri tíma en í nokkra mánuði getur leitt til síðkominna hreyfitruflana (tardive dyskinesia). Þær koma fram sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum. Líkurnar aukast eftir því sem lyfið er notað lengur. Þessar aukaverkanir geta orðið óafturkræfar, en í flestum tilfellum ganga þær til baka á nokkrum mánuðum eftir að lyfjagjöf er hætt. Yngri sjúklingar fá síður þessar aukaverkanir og þær ganga frekar til baka hjá þeim eftir að lyfjagjöf lýkur.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru hreyfitruflanir og koma fram hjá um 40-76% þeirra sem taka lyfið. Alvarlegustu aukaverkanir þess eru síðkomnar hreyfitruflanir af notkun lyfsins til lengri tíma. Þær koma fram sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum, og eru í sumum tilfellum óafturkræfar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, svimi, svefnhöfgi
Þunglyndi
Hreyfitruflanir, parkinsonseinkenni
Brjóstastækkun karlmanna
Gula
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanir
Krampar
Þvagtregða
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sefandi lyf
Janssen-Cilag
Virkt innihaldsefni: Halóperídól
Skráð: 1.12.1972
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: JANSSEN
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 6,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 2,5 mm
Styrkur: 1 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú hafir greinst með krabbamein í brjósti
- þú sért með gláku eða hækkaðan augnþrýsting
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
- þú sért með parkinsonsveiki
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er sjaldan notað fyrir börn, minni skammtar eru þá notaðir.

Eldra fólk:

Auknar líkur eru á aukaverkunum, minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Lyfið getur aukið sljóvgandi áhrif áfengis. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.