Upplýsingar um lyfið
Haiprex

Haiprex, sem inniheldur virka efnið metenamín, er notað til að koma í veg fyrir þvagfærasýkingar, sér í lagi hjá sjúklingum með þvaglegg. Lyfið er einkum notað við langvinnum eða endurteknum sýkingum í neðri hluta þvagrásar og einkennalausri þvagfærasýkingu. Lyfið hentar vel til langtímameðferðar þar sem ónæmi gegn því virðist ekki myndast. Lyfið er breiðvirkt og verkar bæði á Gram-jákvæðar og Gram-neikvæðar bakteríur. Lyfið er virkt gegn þeim bakteríum sem oftast valda þvagfærasýkingum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Fullorðnir: 1 g í senn 2-3svar á dag. Börn 6-12 ára: 0,5 g í senn 2svar á dag. Börn eldri en 12 ára: 1 g í senn 2svar á dag.

Eftir 30 mín.

12 klst. eftir stakan skammt.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið svo lengi sem læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur á strik og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Ógleði og uppköst
Erting í þvagblöðru
Útbrot
Sveppasýking
Blóð í þvagi

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sýklalyf
Meda
Virkt innihaldsefni: Metenamín
Skráð: 1.10.1995
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: 3 M H X
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 19 mm
Lögun: Ílöng Breidd: 8 mm
Kúpt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 7,5 mm
Styrkur: 1 g
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mikinn vökvaskort
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Minni skammtar eru notaðir.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.