Upplýsingar um lyfið
Glimeryl

Glimeryl, sem inniheldur glímepíríð, er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, eða insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, eða insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli og þarf að vera til staðar í líkamanum til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Glímepíríð er notað við sykursýki af tegund II, en hefur ekki áhrif á insúlínháða sykursýki. Það er aðeins notað ef breytt mataræði, aukin hreyfing eða megrun hefur ekki haft áhrif á gang sjúkdómsins. Lyfið má einnig nota samhliða insúlíni. Verkun þess er að auka losun á insúlíni frá briskirtli og hugsanlega einnig að auka áhrif insúlíns á vefi líkamans. Alvarlegar aukaverkanir af völdum glímepíríðs eru sjaldgæfar. Helsti galli þess er sá að í stórum skömmtum getur það valdið of mikilli blóðsykurslækkun, sem getur leitt til alvarlegs ástand. Óreglulegar máltíðir, mikil áreynsla og neysla áfengis auka hættuna á þessu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

1-4 mg á dag. Takist inn rétt fyrir eða með fyrstu máltíð dagsins. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Um 30 mín.

24 klst. eftir stakan skammt.

Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er hluti af meðferð.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið fyrir næstu máltíð nema að þá sé kominn tími til að taka næsta skammt. Í þeim tilfellum skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu strax samband við lækni. Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst. Fylgdu fyrirmælum læknis um viðbrögð við of lágum blóðsykri. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Án vandkvæða. Vegna sykursýkinnar er þó æskilegt að fylgjast reglulega með sykri í blóði eða þvagi. Einnig getur þurft að fylgjast með sjón og lifrar-, nýrna- og hjartastarfsemi.

Aukaverkanir

Lyfið getur valdið of mikilli lækkun á blóðsykri. Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Gula
Of lágur blóðsykur
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sykursýkilyf
Actavis
Virkt innihaldsefni: Glímepíríð
Skráð: 1.5.2006
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Bleikur Bleikur
Áletrun: G
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 8 mm
Lögun: Ílöng Breidd: 4 mm
Flöt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 2 mm
Styrkur: 1 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni en ef merki eru um of lágan blóðsykur ætti ekki að stjórna ökutæki.

Áfengi:

Getur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis, sem aftur minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Sjúklingar sem nota lyfið ættu því ekki að neyta áfengis.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Aukin hætta er á of mikilli lækkun blóðsykurs ef lyfið er tekið samtímis öðrum blóðsykurslækkandi lyfjum. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.

Getur haft áhrif á
Sjá allt (196)