Upplýsingar um lyfið
Galvus

Galvus, sem inniheldur virka efnið vildagliptín, er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem er myndað af betafrumum í briskirtli. Það er nauðsynlegt til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Vildagliptín er notað við sykursýki af tegund II. Vildagliptín er öflugur og sértækur ensímhemill og felst virkni þess í því að auka næmni betafrumna fyrir glúkósa og leiða þannig til aukinnar glúkósaháðrar insúlínseytingar. Einnig hefur lyfið þau áhrif að draga úr framleiðslu glúkósa í lifur, við föstu og eftir máltíðir og stuðla þannig að lægri blóðsykri. Vildagliptín er notað í tveggja lyfja meðferð ásamt metformíni (skráð lyf hér á landi er Glucophage), súlfónýlúrealyfi (skráð lyf hér á landi eru glípízíð (Mindiab), glíklazíð (Diamicron Uno) og glímepíríð (Amaryl, Glimeryl)) eða thíazólidíndíonlyfi (skráð lyf hér á landi eru rósíglítazón (Avandia) og píóglítazón (Actos)) ef meðferð með þessum lyfjum einum og sér hefur ekki borið nægilega góðan árangur. Of mikil lækkun á blóðsykri getur orðið ef lítillar fæðu er neytt, eftir mikla áreynslu eða ef önnur blóðsykurslækkandi lyf eru tekin samtímis lyfinu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Í tveggja lyfja meðferð með metformíni eða thíazólidíndíoni: 50 mg kvölds og morgna. Í tveggja lyfja meðferð með súlfónýlúrealyfi: 50 mg að morgni. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

1-2 klst. 2 vikur geta liðið þar til náðst hefur stjórn á sykursýkinni.

A.m.k. 12 klst.

Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er þáttur í meðferð.

Geymist í lokuðum upprunalegum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Reynsla af notkun vildagliptíns í klínískum rannsóknum er ennþá lítil. Mælt er með því að fylgjast með lifrarensímum sjúklinga ásamt nýrna- og hjartastarfsemi.

Aukaverkanir

Þar sem lyfið er eingöngu notað sem hluti af tveggja lyfja meðferð, getur tíðni aukaverkana verið mismunandi eftir því hvaða lyf er tekið með.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Bjúgur í útlimum, þyngdaraukning
Höfuðverkur, sundl, skjálfti
Of lágur blóðsykur
Ógleði
Þróttleysi
Gula
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sykursýkilyf
Novartis Europharm
Virkt innihaldsefni: Vildagliptín
Skráð: 1.9.2008
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: FB NVR
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 8 mm
Deilistrik: Þykkt: 3 mm
Styrkur: 50 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið hjartabilun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Ekki er mælt með notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir. Notkun lyfsins hefur ekki verið rannsökuð hjá sjúklingum eldri en 75 ára.

Akstur:

Lyfið getur valdið sundli. Ef merki eru um of lágan blóðsykur ætti ekki að stjórna ökutæki.

Áfengi:

Getur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis, en það minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Sjúklingar sem nota lyfið ættu því ekki að neyta áfengis.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.